Fara í efni

Ómerktar hnetur í smákökudeigi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af súkklaðibitakökudeigi frá IKEA sem innhalda hnetur sem ekki eru merktar á innihaldslýsingu. Mistök voru gerð við pökkun og kökudeig sem innihélt hnetur var pakkað í umbúðir sem ekki voru merktar hnetum í deiginu skv. innihaldslýsingu. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar,Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes- (HEF) stöðvað sölu og innkallað súkkulaðibitakökudeigið.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: IKEA
  • Vöruheiti: Súkkulaðibitasmákökudeig
  • Best fyrir: 12.01.2023
  • Geymsluskilyrði: Kælivara 0-4°C
  • Framleiðandi: Miklatorg hf. Kauptúni 4, 210 Garðabæ, sími 520 2500

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til verslunar IKEA Í Garðarbæ.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?