Fara í efni

Ómerkt egg í fullelduðum kjúklingabringum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur með eggjaofnæmi við neyslu á tilteknum Sous vide kjúklingabringum frá Stjörnufugli. Varan inniheldur egg án þess að það komi fram á merkingum. Fyrirtækið innkallar allar lotur með best fyrir dagsetningum fyrir 15.11.20, í samráði við Matvælastofnun.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vöruheiti: Stjörnufugl Sous vide kjúklingabringur, Hvítlaukspipar Parmesan
  • Strikamerki: 2328801005023
  • Best fyrir dagsetningar: Allar fyrir 15.11.20
  • Framleiðandi: Stjörnufugl, Saltvík, 162 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar og verslanir Samkaupa (Nettó og Kjörbúðin)

Stjörnufugls Sous vide kjúklingabringur

Viðskiptavinir Krónunnar og Samkaupa sem keypt hafa vöruna og hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum er bent á að neyta hennar ekki og skila í verslunina þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Stjörnufugls í síma 858-3400 eða á netfanginu addo hjá svinvirkar.is.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?