Fara í efni

Ólöglegt varnarefni í vanilluís

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á þremur framleiðslulotum af  Häagen-Dazs vanilluís sem Natan & Olsen flytja inn. Ástæða innköllunar er vegna þess að það greindisti ólöglegt varnarefni etýlen oxíð í vanilluextrakti sem er eitt af innihaldsefnum í ísnum. Fyrirtækið hefur með aðstoð heilbrigðiseftirlitsins í Reykjavík hefur innkallað vöruna af markaði.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Häagen-Dazs
  • Vöruheiti: Vanilla
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 6.10.2022, 3.3.2023, 29.3.2023
  • Nettómagn: 460 ml
  • Strikamerki: 3415581101928
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Framleiðandi: General Mills
  • Innflutningsfyrirtækið sem innkallar vöru: Nathan & Olsen, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Hagkaup (Akureyri, Eiðistorgi, Garðabæ, Kringlan, Skeifan, Smáralind, Spöng), Pétursbúð ehf., Hlíðarkaup Sauðárkróki, Skagfirðingabúð, Extra (Akureyri, Barónsstíg, Keflavík), Heimkaup og Melabúðin.

ís

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?