Fara í efni

Ólöglegt varnarefni í sesamolíu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við tveimur tegundum af Clearspring sesamolíu. Olíurnar innihalda varnarefnið etýlen oxíð sem er ekki leyfilegt í matvælaframleiðslu í Evrópu. Fyrirtækið Icepharma, sem flytur inn vöruna, hefur innkallað hana með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Innköllunin nær ekki til 250 ml sesamolíu.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vörurnar í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um matvæli og fóður og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Clearspring
  • Vöruheiti: Cl.Sp Sesame Oil 500 ml 45602760
  • Strikamerki: 5021554981534
  • Nettómagn: 500 ml
  • Best fyrir dagsetning: 3.7.2021
  • Lotunúmer: N029
  • Innflytjandi: Icepharma, Lyngháls 13
  • Dreifing: Fjarðarkaup og Veganbúðin
  • Vörumerki: Clearspring
  • Vöruheiti: Cl.sp Toasted Sesame Oil 500 ml 45602741
  • Strikamerki: 5021554982432
  • Nettómagn: 500 ml
  • Best fyrir dagsetning: 20.9.2021
  • Lotunúmer: N108
  • Innflytjandi: Icepharma, Lyngháls 13
  • Dreifing: Fjarðarkaup og Veganbúðin

Sesamolía

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir Davíð vörumerkjastjóri Icepharma í síma 8218072 eða með tölvupósti á netfangið davidb hjá icepharma.is.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?