Fara í efni

Ólöglegt varnarefni í hrökkbrauði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á Hrökkbrauð - Jurtir & sjávarsalt og Crunchy Crackers - Herbs & Sea Salt frá Sigdal Bakeri sem fyrirtækið Danól flytur inn. Varnarefnið ethylene oxide fannst í hráefni sem notað var við framleiðslu á hrökkbrauðinu en það er óheimilt að nota það við matvælaframleiðslu í Evrópu. Fyrirtækið hefur innkallað vörurnar í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. 

Tilkynning um vöruna barst til Matvælastofnunar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður.

Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Sigdal Bakeri
  • Vöruheiti: Hrökkbrauð - Jurtir & sjávarsalt
  • Best fyrir dagsetningar: Milli 06.01.2022 og 18.02.2022 og milli 26.03.2022 og
  • 18.07.2022
  • Strikamerki: 7071848004492
  • Framleiðandi: Bakeverket AS, Noregur
  • Innflytjandi: Danól, Fosshálsi 25, 110 Reykjavík
  • Vörumerki: Sigdal Bakeri
  • Vöruheiti: Crunchy Crackers - Herbs & Sea Salt
  • Best fyrir dagsetningar: Milli 06.01.2022 og 18.02.2022 og milli 26.03.2022 og
  • 18.07.2022
  • Strikamerki: 7071848025077
  • Framleiðandi: Bakeverket AS, Noregi
  • Innflytjandi: Danól, Fosshálsi 25, 110 Reykjavík

Dreifing um allt land. Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni til þeirrar verslunar þar sem sem hún var keypt.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?