Fara í efni

Ólöglegt varnarefni í eplum

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Pinkids eplum frá Pink lady með uppruna í Chile sem Bananar ehf. fluttu inn vegna ólöglegs varnarefnis Bifenthrin. Varnarefni fannst við innra eftirlit framleiðandans. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna af markaði.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna lotu:

  • Vörumerki: Pink Lady
  • Vöruheiti: PinKids
  • Strikamerki: 3700476661534
  • Lotunúmer og best fyrir dagsetning: L261409305/L3505
  • Nettómagn: 550 g
  • Framleiðandi: SARL Mesfruits, Cacaillon, Frakkland
  • Innflytjandi: Bananar ehf., Kornagarður 1, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Bónus.

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila í næstu Bónusverslun.

Ítarefni

Fréttatilkynning frá Bönunum efh.

Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík

 


Getum við bætt efni síðunnar?