Fara í efni

Ólöglegt varnarefni í Cumin fræjum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Cumin fræjum frá Whole Jeera sem fyrirtækið Dai Phat Trading inc ehf. flytur inn. Varnarefnið etýlen oxíð fannst í vörunni en það er óheimilt að nota það í matvælaframleiðslu í Evrópu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Tilkynning um vöruna barst til Matvælastofnunar í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður.

Innköllunin á eingöngu við um framleiðslulotu með eftirfarandi Best fyrir dagsetningu:

  • Vörumerki: TRS
  • Vöruheiti: Whole Jeera – Cumin seeds
  • Framleiðandi: TRS Wholesale co.ltd, 5 Southbridgeway, The Green, Southall, Middlesex, UB2 4BY,
    Bretland
  • Þyngd: 100 g
  • Best fyrir dagsetning: 31.10.2022
  • Framleiðsluland/Upprunaland: Indland
  • Dreifing: Oriental Super Market (Dai Phat Trading inc ehf.), Faxafeni 14, 108 Reykjavík

Cumin fræ

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni í þeirri
verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.


Getum við bætt efni síðunnar?