Ólöglegt nýfæði í fæðubótaefni
Innkallanir -
27.07.2026
Matvælastofnun varar við fæðubótarefninu Codeage Liposomal NMN vegna ólöglegs nýfæðis nikótínamíð mónonúkleótíð (NMT) sem fyrirtækið Mamma veit best ehf. flytur inn og selur í verslun sinni og netsíðu. NMT er ólöglegt að nota í fæðubótaefni.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi vöru:
- Vörumerki: Codeage
- Vöruheiti: Liposomal NMN
- Framleiðandi: Codeage LLC
- Framleiðsluland: B.N.A.
- Pakkning: 30 hylki í dollu
- Lotunúmer: 2025-26403
- Best fyrir: 05/2028
- Framleiðandi: Codeage LLC
- Innflytjandi: Mamma veit best ehf.

Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna eru beðnir um að hætta notkun hennar, farga eða skila henni aftur í versluna.