Fara í efni

Ólöglegt innhaldsefni í orkudrykkjum

Matvælastofnun vill upplýsa um innköllun á öllum Prime orkudrykkjum með best fyrir júní 2025 sem Krónan ehf. flytur inn vegna þess að drykkirnir innihalda efni sem er ekki samþykkt í matvælum öðrum en fæðubótarefnum. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Seltjarnarnes og Mosfellsbæjar (HEF) innkallað drykkina.

Innköllunin á við allar framleiðslulotur og tegundir með best fyrir júní 2025:

  • Vörumerki: Prime Energy,
  • Framleiðandi: Prime Hydration
  • Nettómagn: 330 ml dós
  • Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14
  • Framleiðsluland: Bretland
  • Dreifing: Allar þjónustustöðvar N1

 

  • Vöruheiti: Prime Lemon Lime
  • Lotunúmer/Best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025
  • Vöruheiti: Prime Blue Raspberry
  • Lotunúmer/Best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025
  • Vöruheiti: Prime Ice Pop
  • Lotunúmer/Best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025
  • Vöruheiti: Prime Orange Mango
  • Lotunúmer/Best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir maí 2025
  • Vöruheiti: Prime Strawberry Watermelon
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025
  • Vöruheiti: Prime Tropical Punch
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Öll lotunúmer með best fyrir júní 2025

Viðskiptavinum sem hafa verslað vörurnar á þjónustustöðvum N1 er bent á að skila þeim á viðkomandi stöð gegn fullri endurgreiðslu. Taka skal fram að varan er ekki talin skaðleg, heldur er L-þíanín skilgreint sem nýfæði og hefur ekki fengið leyfi í öðrum matvælum en fæðubótaefnum í Evrópu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?