Fara í efni

Óleyfilegt varnarefni í negulnöglum

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá tveimur heilbrigðiseftirlitssvæðum á Stór- Reykjavíkursvæðinu um innköllun á Kamis Gozdciki negulnöglum vegna ólöglegs varnarefnis klórpýrifos sem greindist yfir mörkum. Innflytjendur hafa innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlitin.

Tilkynning barst til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Einungis er verið að innkalla eftirfarnar lotur:

  • Vörumerki: Kamis.
  • Vöruheiti: Gozdziki (8g).
  • Framleiðandi: McCormik Polska S.A.
  • Innflytjandi: Market ehf.
  • Framleiðsluland: Pólland.
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 0002787537 / 08.02.2028.
  • Strikanúmer: 5900084274098
  • Dreifing: Euro Market Hamraborg 9.

-----------------------------------

  • Vörumerki: Kamis
  • Vöruheiti: Goździki
  • Strikanúmer: 5900084274098
  • Lotunúmer: 0002787537.
  • Geymsluþol: Best fyrir dags. 08.02.2028.
  • Nettómagn: 8 g
  • Framleiðandi: McCormik Polska S.A
  • Framleiðsluland: Pólland
  • Innflytjandi: Mój Market ehf., Álfabakka 14A, 109 Reykjavík
  • Dreifing: Verslun Mój Market, Álfabakka 14.

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila í verslun.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?