Fara í efni

Óleyfilegt varnarefni í hvítlauk

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Golden Lion-black garlic singel cloves sem Dai Phat ehf. flytur inn. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað vöruna. Ástæða innköllunar er vegna þess að það greindist í vörunni ólöglegt varnarefni ethýlen oxíð sem er bannað að nota í matvæli.

Tilkynningin barst til Íslands í gegnum RASFF evrópska hraðviðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Golden Lion
  • Vöruheiti: Black Garlic Single Cloves
  • Lotunúmer: 95381
  • Geymsluþol: Best fyrir dags. 31.03.2027.
  • Framleiðsluland: Kína
  • Dreifingaraðili: Asian Food Group B.V.
  • Innflytjandi: Dai Phat Trading Inc ehf., Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslun Dai Phat Asian Supermarket, Faxafeni 14.

Viðskiptavinum er bent á að neyta ekki vörunnar heldur farga henni eða skila í verslun þar sem
hún var keypt.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?