Fara í efni

Of mikið af B6 vítamínum í ráðlögðum dagskammti

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun á fæðubótarefninu NOW B-100.  Icepharma hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað fæðubótarefnið af markaði vegna of mikils magns af B6-vítamíni. Varan inniheldur 100 mg B6 í hverjum skammti en efri öryggismörk skv. matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) eru 25mg á dag.


Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við: 

Vörumerki: Now. 
Vöruheiti: B-100. 
Best fyrir dagsetningar: Allar. 
Lotunúmer: Öll. 
Strikanúmer: 733739004369. 
Nettómagn: 100 hylkja pakkning. 
Framleiðandi: Now Foods. 
Framleiðsluland: Bandaríkin. 
Innflytjandi: Icepharma, Lynghálsi 13, 110 Reykjavík. 
Dreifing: Verslanir um land allt.



Varan inniheldur 100 mg af B6-vítamíni í ráðlögðum daglegum neysluskammti. Efri öryggismörk fyrir fullorðna skv. Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) vegna neyslu á vítamíninu eru 25 mg á dag. 

Neytendum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki eða farga. Nánari upplýsingar veitir Icepharma í síma 540 8000.

Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?