Fara í efni

Myglusveppaeitur í brasilíuhnetum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á Delicata Brasilíuhnetum í 100 gramma pokum vegna of mikils magns aflatoxíns myglusveppaeiturs. Upplýsingar um innköllun bárust Matvælastofnun frá Danmörku í gegnum RASFF evrópska hraðviðvörunarkerfið um hættuleg matvæli á markaði. Aðföng hafa innkallað hneturnar sem voru til sölu frá 9. ágúst, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Varan var seld í verslunum Bónusar og Hagkaupa um allt land.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem viðvörun og innköllun einskorðast við:

  • Vörumerki: Delicata
  • Vöruheiti: Brasilíuhnetur
  • Uppruni: Bólívía
  • Strikanúmer: 5690350050647
  • Nettómagn: 100 g
  • Best fyrir: 30.04.2019 
  • Framleiðandi: System Frugt A/S, Danmörku
  • Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaupa um land allt

Delicata brasilíuhnetur

Viðskiptavinum Bónus og Hagkaupa sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. 

Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?