Fara í efni

Mygla í vegan smjöri

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur lotum af vegan smjöri frá Naturli vegna hættu á mygluvexti. Kjarnavörur hf. sem flytja inn vöruna eru að innkalla hana af markaði, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður á markaði og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vöruheiti: Naturli lífrænt vegan smjör
  • Þyngd: 225 g
  • BBD: 22.09.2020 og 23.09.2020
  • Framleiðandi: Grönvang Food Aps, Vejen, Denmark
  • Strikamerki: 5701977062118
  • Dreifing: Hagkaup, Bónus, Krónan, Nettó, Kjörbúðin, Iceland, Fjarðarkaup, Melabúðin og Veganbúðin

Naturli lífrænt vegan smjör

Kjarnavörur svara spurningum viðskiptavina um að fá vöruna bætta á netfanginu kjarnavorur@kjarnavorur.is eða í síma 565-1430.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?