Fara í efni

Möguleg skordýr í kryddi

Matvælastofnun varar neytendur við tveimur lotum af Sailling Øko Dild (15g) vegna mögulegrar tilvistar skordýra (bjöllu) í vörunni. Aðföng hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað vöruna.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Salling
  • Vöruheiti: Øko Dild 
  • Nettómagn: 15 g
  • Framleiðandi: DAVA Foods Ingredients A/S 
  • Framleiðsluland: Danmörk
  • Lotunúmer: 007221 og 009157
  • Best fyrir dagsetning: 15.09.2027 og 25.03.2028
  • Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaups

Neytendum er ráðið frá því að neyta vörunnar og er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?