Fara í efni

Möguleg mengun í sælgæti frá IKEA

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun á sælgæti. IKEA hefur innkallað GODIS PÅSKKYCKLING sælgæti í 100g pokum. Ástæða innköllunarinnar er sú að mýs komust inn í framleiðslufyrirtæki sælgætisins og því gætu vörur hafa mengast. 

IKEA sælgæti

IKEA hvetur viðskiptavini til að skila sælgætinu með eftirfarandi dagsetningum sem eru prentaðar aftan á pokann:

  • Vöruheiti: GODIS PÅSKKYCKLING sælgæti
  • Best fyrir dagsetningar: 23. október 2018 til 26. janúar 2019
Nánari upplýsingar eru veittar á ikea.is eða í þjónustuveri IKEA í síma; 520-2500.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?