Fara í efni

Mjólkursúkkulaðidropar í vegan smákökudeigi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar fólk með mjólkurofnæmi við neyslu á vegan smákökudeigi frá IKEA, vegna þess að mjólkursúkkulaðidropar fundust í pakkningu. Kökudeigið gæti því innihaldið mjólkursúkkulaði en er óhætt til neyslu fyrir þá sem þjást ekki af mjólkurofnæmi. IKEA hefur í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Kópavogs , Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna af markaði.

Innköllun á eingöngu við vöru með best fyrir dagsetningu 8. febrúar 2023.

Vöruheiti: Vegan smákökur með súkkulaðibitum
Vörumerki: Heimabakarinn 
Framleiðandi: Miklatorg/IKEA
Þyngd: 500g
Best fyrir: 8. febrúar 2023
Dreifing: IKEA, Kauptúni

Viðskiptavinir sem hafa keypt vegan smákökudeig með súkkulaðibitum með framleiðsludagsetningunni 8. nóvember 2022 geta komið með það í Skilað og skipt í versluninni og fengið endurgreitt. IKEA biðst afsökunar á hvers kyns óþægindum sem þetta kann að valda.

Ítarefni:


Getum við bætt efni síðunnar?