Fara í efni

Ólöglegt varnarefni í marmelaði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Marmelade med appelsin frá Den gamle fabrik sem Ásbjörn Ólafsson ehf. flytur inn. Fyrirtækið, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu. Varnarefnið etýlen oxíð var notað við framleiðslu á aukefninu karóbgúmmí (E410) sem notað var í marmelaðið en það er ólöglegt að nota það við matvælaframleiðslu í Evrópu.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Den Gamle Fabrik
  • Vöruheiti: Marmelade med Appelsin
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 14.10.2022
  • Lotunúmer: 141022
  • Strikamerki: 5701211106028
  • Nettómagn: 380 g
  • Geymsluskilyrði: Á ekki við
  • Framleiðandi: Orkla Danmark
  • Framleiðsluland: Danmörk
  • Innflytjandi: Ásbjörn Ólafsson ehf., Köllunarklettsvegi 6, 104 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir Hagkaupa Skeifunni og Akureyri, Kjöthöllin Háaleitisbraut, Heimkaup, Fjarðarkaup,
Melabúðin, Extra Akureyri og 10-11 í Austurstræti á tímabilinu 24. júní til 21. júlí 2021.

marmelaði

Neyendur sem hafa keypt ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en
einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Þórunn Marinósdóttir, thorunn[hja]asbjorn.is, 414 1121.


Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?