Fara í efni

Markaðssetning á heimaslátruðu lambakjöti

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun framleiðandans Birkihlíðar í Skagafirði á heimaslátruðu lambakjöti sem selt var á bændamarkaði á Hofsósi 30. sep sl. Ástæða innköllunar er að slátrun fór ekki fram í viðurkenndu sláturhúsi og heilbrigðisskoðun var ekki framkvæmd af opinberum dýralækni.

Nánar um vöruna:

  • Vöruheiti: Lambakjöt 
  • Vörumerki: Birkihlíð 
  • Pökkunardagsetning: 29. sep 2018
  • Lýsing: Loftæmdar umbúðir
  • Geymsluskilyrði: Kælivara (0-4°C) 
  • Dreifing: Bændamarkaður Hofsósi 30. sep 2018
  • Framleiðandi: Birkihlíð 

Þeir sem kunna að hafa kjötið undir höndum geta skilað vörunni til Birkihlíðar, 551 Skagafirði gegn endurgjaldi.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?