Fara í efni

Málmflísar í hundanammi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við tiltekinni lotu af hundanamminu Super foods for dogs: Chicken treats with sweet potato, carrot & pumpkin frá Irish Dog Food vegna málmflísa sem kaupandi fann í vörunni. Costco flytur vöruna inn og selur í verslun sinni.

Matvælastofnun gerði kröfu um sölustöðvun og innköllun. Eftir ítrekun hefur Costco nú tekið vöruna úr sölu en ekki innkallað vöruna frá kaupendum skv. upplýsingum stofnunarinnar. 

Málmflísar í fóðri geta valdið skaða m.a. í meltingarfærum dýra. Ekki er nóg að stöðva sölu að mati stofnunarinnar og þarf einnig að upplýsa kaupendur. Hundaeigendur sem keypt hafa hundanammið úr eftirfarandi framleiðslulotu eru hvattir til að nota það ekki: 

  • Vöruheiti: Super foods for dogs: Chicken treats with sweet potato, carrot & pumpkin
  • Vörumerki: Irish rover
  • Lotunúmer: J320311 
  • Best fyrir dagsetning: 05/04/22 
  • Framleiðandi: Irish dog food 
  • Innflytjandi: Costco 
  • Dreifing: Verslun Costco

Málmflísar í hundafóðri

Um fóður gilda lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Skv. 7. gr. e. er fyrirtækjum sem selja fóður skylt að taka fóður af markaði og tilkynna til Matvælastofnunar, álíti þau eða hafi ástæðu til að álíta að fóður sem þau bjóða til sölu sé ekki öruggt. Ef nauðsyn krefur skal að auki innkalla fóður hjá þeim sem þegar hafa keypt fóðrið ef aðrar ráðstafanir duga ekki til þess að tryggja víðtæka heilsuvernd. 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?