Fara í efni

Litlar málmflísar í sælgæti

Matvælastofnun vill vara við neyslu á vissum framleiðsludagsetningum af Haribo Click Mix, Stjerne Mix og Sutterskum sem Danól flytur inn, vegna aðskoðahluta sem geta verið í sælgætinu. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna af markaði.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Haribo
  • Vöruheiti: Chick Mix 120g
  • Best fyrir dagsetning: 04/2024 og 05/2024
  • Vöruheiti: Stjerne Mix 275g
  • Best fyrir dagsetning: 03/2024
  • Vöruheiti: Sutter Skum 100g
  • Best fyrir dagsetning: 01/2024
  • Framleiðandi: Haribo DK
  • Innflytjandi: Danól ehf, Fosshálsi 25, 110 Reykjavík
  • Dreifing: Bónus, Hagkaup, Fjarðarkaup, Heimkaup, Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin Extra, Melabúðin, Verslunin Álfheimar ehf, Kaupfélag Skagfirðinga og Corner shop.

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni í þá verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Ítarefni

 

 

 

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?