Fara í efni

Listería í reyktum regnbogasilungi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kofareyktum regnbogasilungi frá fyrirtækinu Hnýfill efh. Grunur er um mengun vegna Listeria monocytogenis í vörunni og í varúðarskyni hefur hún verið stöðvuð í sölu og innköllun af markaði.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Kofareyktur regnbogasilungur
  • Framleiðandi: Hnýfill ehf., Óseyri 22, 600 Akureyri
  • Framleiðsludagur: 11.04.2022
  • Lotunúmer: 23116295
  • Strikamerki: 23116295
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Dreifing: Olís verslun í Varmahlíð, Kjörbúðin á Siglufirði, Dalvík og Blönduósi, Krambúðin Byggðavegi og Búðardal, Kaupfélag V- Húnvetninga, Nettó á Glerártorgi, Hrísalundi, Selfossi og Ísafirði.

silungur

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn,  aldraðir og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.

 Neytendum sem keypt hafa vörurnar er bent á að neyta hennar ekki og skila henni til viðkomandi verslun þar sem hún var keypt.

 

 Ítarefni:

 

 

 

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?