Fara í efni

Listería í graflaxi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

  Fyrirtækið Reykhúsið Reykhólar ehf. hefur tilkynnt Matvælastofnun um að það hafi ákveðið að stöðva sölu og innkalla af markaði grafinn lax vegna bakteríunnar Listeria monocytogenes, sem greindist yfir viðmiðunarmörkum við lok líftíma vörunnar. Innköllunin nær til dagsetningarinnar „Síðasti neysludagur 15.10.2011“. Neytendur sem hafa í fórum sínum, í kæli eða frysti, pakkningar með ofangreindri dagsetningu eru beðnir að skila vörunni með því að hafa samband við Reykhúsið Reykhóla í síma 824 3180.

Varan, með þessum líftíma, hefur verið tekin af markaði.


Listeria monocytogenes getur valdið matarsýkingum hjá áhættuhópum en það eru barnshafandi konur og einstaklingar með skert ónæmiskerfi.

Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?