Fara í efni

Listería finnst í reyktum laxi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af  reyktum laxi frá John Ross Junior, Skotlandi sem fyrirtækið Costco flytur inn. Innköllun á laxinum er vegna þess að örveran Listeriu monocytogenis greindist í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað vöruna með tilkynningu til þeirra kaupenda sem keypt hafa vöruna.

Matvælastofnun tók sýni af laxinum í reglubundnu landamæraeftirliti.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: John Ross
  • Vöruheiti: Scottish smoked salmon 340 gr.
  • Framleiðsluland: Skotland
  • Framleiðandi: John Ross Junior ltd
  • Innflytjandi: Costco
  • Best fyrir dagsetning: 28.05.22
  • Dreifing: Costco

lax

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn,  aldraðir og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.

Neytendur eru beðnir um að neyta ekki vörunnar og farga henni. Costco hefur tekið allar einingar af viðkomandi vöru úr sölu og fargað þeim. Hægt er að fá endurgreitt hjá Costco .Nánari upplýsingar veitir Costco (þjónustuborð)

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?