Lífræn leysiefni í sushi hrísgrjónum
Innkallanir -
27.05.2026
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Shinode premium sushi rice 1kg frá Sunclad sem Fiska.is og Daiphat flytja inn. Varan hefur verið innkölluð í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF) og Reykjavíkur vegna lífrænna leysiefna (MOAH).
Tilkynningin barst til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu á Íslandi:
- Vörumerki: Sunclad.
- Vöruheiti: Shinode premium sushi rice 1kg.
- Best fyrir: 23.12.27.
- Nettómagn: 1kg.
- Geymsluskilyrði: Þurrvara.
- Framleiðandi: Sunclad, Via Pietro Bosso 53/A, 15030 Villanova Monferrato (AL).
- Framleiðsluland: Ítalía.
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Fiska.is Nýbýlavegi 6 200 Kópavogur og Dai Phat, Faxafeni 14 Reykjavík´

Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila til Fiska Nýbýlavegi 6 í Kópavogi eða Dai Phat í Faxafen 14 Reykjavík