Fara í efni

Aðskotaefni í hrísgrjónaolíu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á hrísgrjónaolíu sem Dhai Phat Trading ehf. flytur inn og selur í verslun sinni vegna aðskotaefna (Glycidyl ester).

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið. Fyrirtækið hefur innkallað olíuna, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. 

Innköllunin nær eingöngu til eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Rizi
  • Vöruheiti: Reisöl 
  • Strikanúmer: 8850345950490 
  • Best fyrir: 09.03.2021 
  • Nettómagn: 500 ml
  • Framleiðsluland: Taíland 
  • Innflytjandi: Dai Phat Trading ehf, Faxafeni 14, 108 Reykjavík
  • Dreifing: Dai Phat Trading ehf, Faxafeni 14, 108 Reykjavík

Innköllun á hrísgrónaolíu

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Ítarefni

Uppfært 31.07.20 kl. 13:25


Getum við bætt efni síðunnar?