Krosssmit af ofnæmis-og óþolsvalda í súkkulaðirúsínum
Innkallanir -
22.01.2026
Matvælastofnun varar við Forest feast súkkulaðirúsínum frá Bretlandi sem sem selt er í Costco verslun vegna mögulegs krossmit af jarðhnetum og tréhnetum. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna frá viðskiptavinum sem keypt hafa vöruna.
Innköllunin á við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Forest Feast
- Vöruheiti: Belgian Milk Chocolate Jumbo Raisins
- Framleiðandi: Kestrel Foods Ltd.
- Innflytjandi: COSTCO á Íslandi
- Framleiðsluland: Bretland
- Lotunúmer/best fyrir dagsetning: 5344136460/31-12-2026, 5345136460/31-12-2026, 5346136460/31-12-2026
- Dreifing: COSTCO, Kauptúni 3, Garðabæ

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila til verslunarinnar.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Costco ehf.
- Fréttatilkynning frá heilbrigðiseftirlitinu
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Matvælastofnun á facebook