Fara í efni

Innköllun vegna ólöglegra lyfja í fæðubótarefni.

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.


Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun á sölu og innköllun úr verslunum eftirfarandi vöru: 



Vörumerki:  BioTech USA. 
Vöruheiti:  Joint & Cartilage. 
Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili:  Varan er framleidd fyrir BioTech USA í Bandaríkjunum.  Innflutt til Íslands af Heilsusporti ehf. (Sportlífi), Síðumúla 1, 108 Reykjavík. 
Auðkenni/skýringartexti:  Joint & Cartilage inniheldur glúkósamín sem skilgreint er sem lyf af Lyfjastofnun en einnig MSM (methyl-sulphonyl-methane) sem fengið hefur B-flokkun hjá Lyfjastofnun.  Leiki vafi á því hvort einstök efnasambönd teljist lyf sker Lyfjastofnun úr, sbr. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. 
Laga- /reglugerðarákvæði:  1. mgr. 11. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. 
Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Sportlífs (vefverslun og verslanir fyrirtækisins í Glæsibæ og Holtagörðum).


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?