Innköllun á saltsteinum fyrir búfénað
Innkallanir -
27.02.2026
GPG Seafood ehf hefur, í samráði við Matvælatstofnun, innkallað saltsteina fyrir búfénað. Ástæða innköllunar er að fyrirtækið hefur ekki fullnægjandi leyfi fyrir framleiðslu vörunnar.
- Vöruheiti: Bætiefna - saltsteinn
- Vörunúmer: 601
- Lota: Allar lotur
- Framleiðandi: GPG Seafood ehf., Suðurgarði 4, 640 Húsavík
- Dreifing: Lífland, Bústólpi, Kaupfélag Vestur Húnvetninga (KVH) og Kaupfélag Skagfirðinga (KS)
Þeir sem keypt hafa vöruna skulu skila henni þangað sem hún var keypt.
