Fara í efni

Innköllun á Rema1000 tómatsósu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun fékk upplýsingar frá systurstofnun sinni í Danmörku um innköllun á Rema1000 tómatsósu.  Ástæða innköllunarinnar er ofvöxtur á mjólkursýrubakteríum og gerjunar á vörunni.

Innflytjandi vörunnar, Víðir ehf,  hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.

 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Rema1000

Vöruheiti:  Ketchup - tómatsósa

Strikanúmer: 5002269761

Best fyrir: 31/1-2018, 16/2-2018, 22/2-2018, 1/3-2018 og 15/3-2018

Nettómagn: 1000 g.

Framleiðandi: Rema1000.

Framleiðsluland: Danmörk.                                 

Innflytjandi: Víðir ehf., Skeifunni 11, 108 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir Víðis.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til  þeirrar verslunar þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.  



Getum við bætt efni síðunnar?