Fara í efni

Innköllun á kartöflusalati

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

 

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kartöflusalati með lauk og graslauk, frá Þykkvabæjar ehf. vegna aðskotahlutar sem fannst í vörunni.

Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands innkallað eina framleiðslulotu af vörunni og sent út fréttatilkynningu þar um.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Þykkvabæjar ehf.
  • Vöruheiti: Kartöflusalat með lauk og graslauk
  • Strikamerki: 5690599003411
  • Framleiðslulota: Síðasti notkunardagur: 05.08.2022
  • Nettómagn: 400 g
  • Dreifing: Bjarnabúð ehf. Brautarhóli, Bónus, Extra, Fjarðarkaup, Gusa ehf, Gvendarkjör, Hagkaup, Hamona ehf, Hjá Jóhönnu ehf, Hlíðarkaup/Raðhús ehf, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Kauptún rekstarfélag ehf, Kostur, Krónan, Melabúðin ehf, Olís Varmahlíð, Plúsmarkaðurinn, Samkaup: Iceland, Kjörbúðin, Krambúðin, Nettó, Strax.  Skagfirðingabúð, Smáalind ehf, Túnberg ehf/Verslunin Rangá, Verslunarfélag Drangsness ehf., Wedo ehf./Heimkaup. Auk þess nokkrir einstaklingar.

Kartöflusalat með lauk og hvítlauk

Neytendum sem hafa keypt umrædda vöru er bent á að neyta hennar ekki heldur skila vörunni í verslun eða á skrifstofu Þykkvabæjar ehf, Austurhrauni 5, 210 Garðabæ. Frekari upplýsingar veitir Þykkvabæjar ehf. í sími 564-1155 eða netfang thykkvabaejar@thykkvabaejar.is

Ítarefni: 

 


Getum við bætt efni síðunnar?