Innihaldslista vantar á Krónu pylsur
Innkallanir -
13.08.2026
Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja við einni lotu af Krónu pylsum. Ein lota af vörunni fór á markað án innihaldslista. Varan inniheldur sojaprótein sem kemur ekki fram á umbúðum hennar. Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, hefur innkallað vöruna.
Eftirfarandi framleiðslulota eru innkölluð:
- Vörumerki: Krónan
- Vöruheiti: Pylsur 10 stk
- Framleiðandi: Kjarnafæði Norðlenska fyrir Krónuna
- Framleiðsluland: Ísland
- Lotunúmer: 758-26210-2
- Síðasti notkunardagur: 27.08.2026
- Geymsluskilyrði: Kælivar
- Dreifing: Verslanir Krónunnar
Neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja skulu ekki neyta vörunnar heldur farga eða
skila í verslun til að fá endurgreiðslu.
Hér má sjá myndir af vörunni vanmerktri sem og mynd af vöru með réttum innihaldslista
