Hátt magn af áli í te
Innkallanir -
06.08.2026
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af SHAN WAI SHAN matcha green tea sem Kina Panda ehf flutti inn vegna þess að það mældist of hátt magn af áli (aluminum) í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja innkallað vöruna.
Tilkynning um innköllun kom í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfi um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: SHAN WAI SHAN
- Vöruheiti: Matcha green tea
- Geymsluþol: Lotunúmer NL-02-250312, best before 12/03/2028
- Nettómagn: 12x80 g
- Framleiðandi: Fujian Blue Lake Foods Co.
- Framleiðsluland: Kína
- Innflytjandi: Kína Panda ehf.
- Innflytjandi: Kína Panda ehf., Hafnargötu 90, Reykjanesbæ
- Dreifing: Kína Panda ehf., Hafnargötu 90, Reykjanesbæ

Neytendur sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila til
verslunarinnar.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Matvælastofnun á facebook