Fara í efni

Grunur um svínaflensu á öðru svínabúi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

  Grunur hefur vaknað um inflúensu í svínum á einu svínabúi í Eyjafirði. Sýni verða tekin í dag og send til rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Svínaflensa smitast ekki með svínakjöti og fólki stafar því engin hætta af neyslu þess. Til að hindra útbreiðslu smits til annarra búa hefur bann verið sett á flutning dýra frá búinu og sóttvarnir hertar.

Einkenni inflúensu í svínum eru m.a. hár hiti og lystarleysi, kvef og hósti. Svínin ná sér oftast eftir þriggja til sex daga veikindi.


Sú almenna regla gildir að óheimilt er að slátra veikum dýrum, þetta á jafnt við um svínaflensu sem aðra sjúkdóma. Ekki er ástæða til að banna slátrun einkennalausra svína þótt önnur svín á búinu séu veik. Svínaflensusmit berst ekki í fólk með neyslu svínakjöts.

Engin tengsl eru talin vera milli þessa grunaða tilfellis og fyrstu staðfestu greiningu á svínainflúensu í svínum á Minni-Vatnsleysu.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?