Fara í efni

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á ferskum kjúklingi (heilum kjúklingi, bringum, lundum og bitum) frá Reykjagarði með rekjanleikanúmerunum 002-20-26-3-01 og 003-20-26-2-01 vegna gruns um salmonellu. Kjúklingurinn er seldur undir merkjum Holta, Kjörfugls og Krónunnar. Fyrirtækið hefur hafið innköllun.

Innköllunin nær eingöngu til eftirfarandi framleiðslulota:

  • Vöruheiti: Holta, Kjörfugl og Krónu kjúklingur
  • Vörutegund: Heill fugl, bringur, lundir, bitar
  • Framleiðandi: Reykjagarður hf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík
  • Rekjanleikanúmer: 002-20-26-3-01 og 003-20-26-2-01
  • Dreifing: Iceland verslanir, Hagkaups verslanir, Krónan, KR Vík, Kjarval, Nettó, Costco, Baskó/10-11 Austurstræti, Bjarnabúð, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki; Kjörbúðin Dalvík, Djúpavogi, Eskifirði, Grundarfirði, Neskaupsstað og Skagaströnd; Krambúðin Búðardal og N1 Akranesi, Borgarnesi, Staðarskála

Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessum rekjanleikanúmerum geta skilað þeim til viðkomandi verslunar eða beint til Reykjagarðs hf. að Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.

Ítarefni

Uppfært 05.08.20 kl. 14:19


Getum við bætt efni síðunnar?