Fara í efni

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á Ali og Bónus kjúklingi vegna gruns um salmonellu. Um er að ræða kjúklinga með rekjanleikanúmerið 215-20-25-1-01. Dreifing hefur þegar verið stöðvuð og innköllun hafin frá þeim verslunum sem fengu vöruna.

Fyrirtækið Matfugl efh. sendi upplýsingar til Matvælastofnunar.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Ali og Bónus
  • Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
  • Rekjanleikanúmer/lotunúmer: 215-20-25-1-01
  • Dreifing: Bónus, Krónan, Fjarðarkaup, Iceland
  • Síðasti notkunardagur 28.07.20 - 30.07.20

Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?