Fara í efni

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á kjúklingi frá Matfugli seldum undir merkjum Bónus, Ali eða FK með framleiðslulotunúmeri 215-19-01-1-06 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar) og pökkunardag 03.02.2020 - 07.02.2020. Matfugl hefur stöðvað dreifingu og innkallað kjúklinginn. 

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Ali, Bónus, FK
  • Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
  • Lotunúmer: 215-19-01-1-06 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar) með pökkunardag 03.02.2020 - 07.02.2020
  • Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir, Fjarðarkaup, Nóatún

Neytendum sem keypt hafa kjúklinginn er bent á að skila honum í viðkomandi verslun eða til fyrirtækisins að Völuteigi 2 í Mosfellsbæ.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?