Fara í efni

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á tilteknum ferskum kjúklingi frá Reykjagarði seldum undir merkjum Holta, Kjörfugls og Krónunnar vegna gruns um salmonellu í tveimur lotum. Dreifing á kjúklingnum hefur verið stöðvuð og stendur innköllun yfir.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vöruheiti: Holta, Kjörfugl og Krónan
  • Framleiðandi: Reykjagarður, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík
  • Lotunúmer: 001-19-36-3-02 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar, læri með beini, úrbeinuð læri, leggir, vængir) með pökkunardag 8.10 og 9.10
  • Lotunúmer: 001-19-37-3-17 (Holta og Krónu bringur, læri í Krónuverslanir og í Costco merkt Holta; læri, leggir, lundir og úrb. læri) pökkunardagur 11.10
  • Dreifing: Nettóverslanir um allt land, Krónuverslanir um allt land, Kjörbúðin um allt land, Baskó /Iceland Akureyri, Basko/10-11 Laugavegi og Barónsstíg, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Olís Varmahlíð, Costco
Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir að skila inn vörunni í viðkomandi verslun eða beint til Reykjagarðs Fosshálsi 1. 110 Reykjavík

Tekið skal fram að ef áprentuðum leiðbeiningum á umbúðum er fylgt og kjúklingurinn steiktur í gegn þá er hann hættulaus neytendum. Tryggja þarf að blóðvökvi komist ekki í aðra matvöru.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?