Grunur um salmonellu í fersku hakki
Innkallanir -
11.03.2026
Matvælastofnun vill vara við neyslu á fersku Íslandsnaut ungnautahakki og Íslandsnaut Smach Styla hamborgurum frá Ferskum Kjötvörum vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna.
Eingöngur er verið að innkalla eftirfarna lotu:
- Vöruheiti: Íslandsnaut ungnautahakk og Íslandsnaut Smash Style hamborgara (100g)
- Nettómagn: 500g (ungnautahakk) og 100g (hamborgarar)
- Umbúðir: Plastumbúðir og pappi
- Strikamerki: 1569431193005 (ungnautahakk) og 1569431193000 (hamborgarar)
- Best fyrir dagsetning: 13/03/2026 og 16/03/2026
- Lotunúmer: 102-6-062-02 (ungnautahakk) og 064-6-062-04 (hamborgarar)
- Geymsluskilyrði: Kælivara 0-4°C
- Framleiðandi: Aðföng/Ferskar kjötvörur, Síðumúla 34
- Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaups

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila til verslunarinnar