Fara í efni

Grunur um salmonellu í ferskum kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af  ferskum heilum kjúklingi frá Matfugli ehf. vegna gruns um salmonellusmit. Fyritækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Bónus
  • Vörutegund: Heill ferskur kjúklingur og marineraður.
  • Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
  • Lotunúmer: 011-26-03-5-64
  • Dreifing: Bónusverslanir í Hraunbæ (1/1 Bónus heill ferskur) og Smáratorgi, Norðurtorgi, Kjarnagata í Naustahverfi, Reykjanes Njarðvik og Langholti á Akureyri (Bónus 1/1 ferskur marineraður)

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila til verslunarinnar.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?