Fara í efni

Grunur um salmonellu í ferskum kjúklingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Grunur um salmonellu hefur komið upp í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli Fyrirtækið hefur innkallað kjúkling með rekjanleikanúmerinu (Rlnr.) 215-14-22-1-02. Þeir sem eru með ferska kjúklinga frá fyrirtækinu með fyrrgreindu rekjanleikanúmeri geta skilað kjúklingnum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls.

Tekið skal fram að ef leiðbeiningum um eldun á umbúðum er fylgt og kjarnhiti kjötsins nær 72°C er ekki talin hætta á að fólk geti smitast af salmonellu. Ekki liggur fyrir grunur um að aðrar afurðir hjá Matfugli séu mengaðir af salmonellu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?