Fara í efni

Grunur um Listeríu í graflaxi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið tilkynningu frá fyrirtækinu Ópal Sjávarfangi ehf. um að það hafi ákveðið að stöðva sölu og innkalla af markaði grafinn lax vegna gruns um mengun af völdum bakteríunnar Listeria monocytogenes 

Innköllunin nær til dagsetningarinnar „best fyrir" 04.09.2011 til og með 07.09.2011. Neytendur sem hafa í fórum sínum, í kæli eða frysti, pakkningar með ofangreindum dagsetningum eru beðnir að skila vörunni með því að hafa samband við Ópal Sjávarfang í síma 517 6630 eða 864 8295.
Varan, með þessum líftíma, er ekki lengur á markaði. 

Listeria monocytogenes getur valdið matarsýkingum hjá áhættuhópum en það eru barnshafandi konur og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. 

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?