Fara í efni

Glerbrot í salsasósu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Tostitos salsasósu vegna glerbrots sem fannst í einni krukku. Aðföng sem flytur inn vöruna hefur innkallað lotuna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. 

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Tostitos
  • Vöruheiti: Chunky Salsa, Medium
  • Strikanúmer: 028400055987
  • Best fyrir: 10. apríl 2019
  • Lotunúmer: 2331100TB11:46
  • Nettómagn: 439,4 g.
  • Framleitt fyrir: Frito-Lay, Inc. í Bandaríkjunum.
  • Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Bónus, Hagkaupa og Super1 um land allt.

Viðskiptavinum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?