Fara í efni

Glerbrot í frosnu grænmeti

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af frosinni grænmetisblöndu frá Hortex sem dreift var í verslun Mini Market í Breiðholti og í Kópavogi vegna aðskotahlutar (glerbrot) sem fannst í vörunni. Mini Market hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

  • Vöruheiti: Zupa Wiosenna 9-cio składnikowa
  • Vörumerki: Hortex
  • Innflytjandi: Mini Market, Drafnarfelli 14, 111 Reykjavík. 
  • Best fyrir dagsetning: 02/2027
  • Nettó þyngd: 450g
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Dreifing: Verslanir Mini Market í Breiðholti og í Kópavogi

Neytendur sem hafa þessa vöru undir höndum eru hvattir til að neyta hennar ekki heldur skila
henni í næstu Mini Market verslun gegn endurgreiðslu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?