Fara í efni

Flæði þungmálma úr steypujárnspönnu

Matvælastofnun vara neytendur við Napoleon grillpanna pottjárn pönnu sem Byko flytur inn vegna flæði þungmálma. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF).

Viðvörun um pönnurnar kom til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættileg matvæli, fóður og matarsnertiefni. 

Innköllunin gildir fyrir neðangreinda vöru:

  • Vörumerki: Napoleon
  • Vöruheiti: Grillpanna pottjárn
  • Framleiðandi: Napoleon Systems and Developments Ltd, Kanada
  • Innflytjandi: Byko, Skemmuvegi 2a, 200 Kópavogur
  • Framleiðsluland: Kína
  • Dreifing: Dreift og selt í verslunum BYKO og vefverslun byko.is

Í fréttatilkynning frá Byko er kaupendum ráðlagt að hætta að nota pönnuna umsvifalaust og skila í næstu Byko verslun.

Ítarefni

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?