Fara í efni

Flæði efna yfir mörkum úr pastaskeiðum

Matvælastofnun varar við notkun á pastaskeiðum úr plasti vegna þess að flæði efna (PAA (Primary Aromatic Amines)) úr plastinu er yfir mörkum. Ásbjörn Ólafsson ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað pastaskeiðarnar frá neytendum.

Mörk fyrir flæði efna úr matvælasnertiefnum eru í reglugerð Evrópusambandsins nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. 

Tilkynningin barst til Íslands í gegnum RASFF evrópska hraðviðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

  • Vörumerki: GastroMax by Orthex
  • Vöruheiti: Pasta ladle Vörunúmer: Art. no. 6918-1
  • Strikamerki: 7332462071810

Vandamálið tengist framleiðslulotu sem framleidd var í desember 2024. Hægt er að bera kennsl á þessa lotu með klukkutáknum sem eru staðsett á bakhlið handfangsins:

  • Neðri klukkan sýnir framleiðslumánuð og á að vísa á „12“ (desember).
  • Efri klukkan sýnir árið og á að vísa á „24“ (2024).

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru Ásbjörn Ólafsson ehf., Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík

Dreifing Hagkaup; Fjarðarkaup; Kaupfélag Skagfirðinga; Skipavík; Kauptún; Bjarnabúð; Verslunin Kassinn.

Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og skila henni til söluaðila. Ef einhverjar spurningar vakna eða fyrir nánari upplýsingar vinsamlega hafið samband við sala@asbjorn.is. 


Getum við bætt efni síðunnar?