Fara í efni

Fiskréttur vanmerktur ofnæmis- og óþolsvöldum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur við sem eru með ofnæmi eða óþol við Fiski í mangó karrýsósu frá Fiskverslun Hafliða vegna vanmerkinga á ofnæmis- og óþolsvöldum þ.e. sellerí og einnig getur varan innihaldið snefil af  eggjum, glúteni og sinnepi. Fyrirtækið Icelandic Food Company ehf. hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu á vörunni og innkallað frá neytendum.

Innköllunin á við allar best fyrir dagsetningar:

  • Vörumerki: Fiskverzlun Hafliða
  • Vöruheiti: Fiskur í mangó karrýsósu
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar
  • Strikamerki: 2394013007148
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Framleiðandi: Icelandic Food Company ehf., Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík.
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Fyrirtæki: Icelandic Food Company ehf., Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.

Neytendum, sem eru með ofnæmi eða óþol fyrir sellerí, eggjum, glúteni og sinnepi er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni í næstu Krónu verslun.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?