Fara í efni

Uppfært-Ekki með starfsleyfi til að framleiða hákarl

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofun vekur athygli á innköllun á Úrvals Hákarli frá Vestfiski ehf. sem framleiðir fyrir Ó. Johnson & Kaaber sem dreifir vörunni á markað. Innköllunin er vegna þess að framleiðandinn er ekki með starfsleyfi fyrir framleiðslunni. OJK hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.

Innköllunin á við allar best fyrir dagsetningar:

  • Vöruheiti: Úrvals hákarl
  • Geymsluþol: Allar Best fyrir Dagsetning-uppfært
  • Strikamerki: 5694230087303
  • Nettómagn: 100 g
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Ábyrgðaraðili og dreifingaraðili: Ó. Johnson & Kaaber, Tunguhálsi 1, 110 Reykjavík.
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Dreifing: Hraðbúðin Hellissandi, Hagkaup, Kostur, BL ehf., Kaupfélag V-Húnvetninga, 10-11, Extra,Plúsmarkaðurinn og Krónan

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til Ó. Johnson & Kaaber.

Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?