Fara í efni

Aðskotahlutur í tertum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um innköllun Myllunnar á 7 vörutegundum af tertum vegna aðskotahlutar. Glerbrot fannst í kremi á einni tertu. 

Innköllunin einskorðast við eftirfarandi súkkulaðitertur merktar Myllunni, Bónus, Krónunni og Hagkaupum. 

  • Myllu súkkulaðiterta 2 hæða (vnr 2058, strikamerki 5690568020586) 
  • Myllu súkkulaðiterta 3 hæða (vnr 2059, strikamerki 5690568020593) 
  • Bónus súkkulaðiterta 3 hæða (vnr 2013, strikamerki 5690568020135) 
  • Bónus Mömmudraumur (vnr 2014, strikamerki 5690568020142) 
  • Krónu súkkulaðitertu 2 hæða (vnr 2054, strikamerki 5690568020548) 
  • Krónu súkkulaðitertu 3 hæða (vnr 9528, strikamerki 5690568095287) 
  • Súkkulaðiterta Hagkaup 3 hæða (vnr 9535, strikamerki 5690568095355) 

  • Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar til og með 29.11.2016.
  • Dreifing: Verslanir Bónuss, Kaupáss (Krónan, Kjarval), Samkaupa (Nettó, Strax, Úrval) og Hagkaupa um allt land, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki og Varmahlíð, Kostur, Þín verslun, 10-11 Austurstræti, Iceland Engihjalla, Hlíðarkaup, Kauptún – kökur.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vörurnar er bent á að hægt er að skila þeim til þeirrar verslunar þar sem þær voru keyptar eða til Myllunnar, Skeifunni 19 milli 8 og 16 alla virka daga. Frekari upplýsingar fást hjá gæðadeild Myllunnar í síma 510 2356 eða með því að senda tölvupóst á netfangið gaedastjori@myllan.is.

Ítarefni

Frétt uppfærð 15.11.16 kl. 10:04



Getum við bætt efni síðunnar?