Fara í efni

Aðskotahlutur í sólþurrkuðum tómötum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá neytanda um aðskotahlut (trúlega glerbrot) í krukku af sólþurrkuðum tómötum. Í varúðarskyni hefur fyrirtækið Samkaup ákveðið að innkalla alla lotuna, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja.

  • Vöruheiti: „Soltörrede tomater“.
  • Vörumerki: Coop
  • Nettóþyngd: 285/145 g
  • Strikamerki: 7340011466208
  • Sölu- og dreifingaraðili: Samkaup, Krossmóa 4, 230 Reykjanesbæ
  • Best fyrir merking: 23/05/2020
  • Umbúðir: Glerkrukkur
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Dreifing: Í verslanirnar Nettó, Kjörbúðin og Krambúðin um land allt.

Sólþurrkaðir tómatar

Neytendum er ráðlagt að farga vörunni eða skila henni til viðkomandi verslunar. Nánari
upplýsingar veitir Björn Björnsson, innkaupastjóri (bjorn@samkaup.is).

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?